Nýr vefur Eimskips markar ný viðmið í hleðsluhraða
Eimskip er leiðandi í flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi. Eimskip og Vettvangur tóku höndum saman um að þróa heildstæðar lausnir sem virka í kviku alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Áhersla var lögð á sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu notenda en jafnframt var gengið úr skugga um að félagið hefði sveigjanleika til staðfærslu á mismunandi markaðssvæðum.
Nýtt viðmót skerpir þjónustuleiðir
Leiðarkerfi var einfaldað þar sem lögð var áhersla á að draga betur og skýrar fram fjölbreyttar þjónustuleiðir, sem áður voru lítt sýnilegar á undirsíðum. Sjálfsafgreiðsla viðskiptavina var einnig auðvelduð með betra flæði og endurhönnun reiknivéla.
Þá var fjárfestahluti vefsins einnig endurhannaður með það í huga að auðvelda aðgengi að lykilupplýsingum um rekstur samstæðunnar.
Uppfærð tækni - ný viðmið í vinnsluhraða
Sérfræðingar Vettvangs hafa undanfarið unnið að því að endurhanna kóðagrunn fyrir öll verkefni til að bæta gæði og skipulag kóðans. Sú vinna hefur einnig skilað sér í stórauknum vinnsluhraða veflausna okkar.
Veflausn Eimskips var nýtt sem pilot-verkefni fyrir þessa þróunarvinnu og er óhætt að fullyrða að nýjum viðmiðum hafi verið náð hvað varðar vinnsluhraða. Sem dæmi má nefna að hleðsluhraði síðna Eimkips sem hýstar eru á Azure er 0.136 sekúndur (með „cache“) en meðatalshleðsluhraði vefsíðna er um 3,2 sekúndur.
Veflausnir færðar í sameinað Azure umhverfi
Í samræmi við umfangsmikinn rekstur Eimskip samstæðunnar er kerfisreksturinn flókinn. Í tengslum við nýja uppfærslu á vef fyrirtæksins var tekin ákvörðun um að endurskipuleggja, einfalda og nútímavæða kerfisreksturinn og færa allar veflausnir í sameiginlegt Azure umhverfi.
Þann þátt verkefnisins annaðist Well Advised, systurfyrirtæki Vettvangs.
Þessi uppfærsla var töluvert umfangsmikil og flókin en fólst hún meðal annars í eftirfarandi verkþáttum:
- Teikna og setja upp nútímalegt, samræmt hýsingarumhverfi í Azure fyrir allar lausnir Eimskip samstæðunnar
- Setja upp þjónustur, skilgreina afritunarreglur og yfirfara áskriftir til að lækka kostnað
- Fara yfir og samræma allar öryggisstillingar
- Setja upp DevOps þróunarferla til að auðvelda framtíðarþróun lausna
Elmar Gunnarsson
Viðskipti og ráðgjöf
Viltu kíkja í spjall?
Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.