Tandur: 300% fleiri netpantanir með nýrri vefverslun

Tandur hf. hefur verið leiðandi í framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum til fyrirtækja og stofnana í nær 50 ár, en fyrirtækið var stofnað 1973. Á meðal viðskiptavina Tandurs eru fyrirtæki í matvælaiðnaði, stóreldhús, veitingastaðir, skólar, heilbrigðisstofnanir, sundlaugar og þrifaverktakar.

Hans Júlíus Þórðarson

Hans Júlíus Þórðarson

Markaðsmál og efnisþjónusta

julli@vettvangur.is

Tandur ákvað fyrir nokkru að leggja í metnaðarfulla stafræna vegferð þar sem áhersla yrði lögð á að straumlínulaga og sjálfvirknivæða ýmsa ferla í starfseminni. Stór liður í þeirri vinnu var að uppfæra vef Tandurs og innleiða nýja og nútímalega B2B vefverslun.

Áskorunin

Stjórnendur Tandurs vissu að verkefnið væri stórt enda hafði töluverð tækniskuld safnast upp á undanförnum árum. Vefurinn var til dæmis um 15 ára gamall. 

Tæknistjóri Tandurs, Hallur Húmi Blumenstein og teymi hans, hófu könnun á mögulegum lausnum og höfðu í upphafi fjórar stofur til skoðunar. Fljótlega varð hins vegar ljóst að aðeins tvær stofur réðu við verkefnið eins og metnaður stóð til.

Við vissum frá upphafi að það þýddi ekkert að bjóða okkur staðlaða vefverslunarlausn. Við erum með viðskiptavini með mjög ólíkar þarfir og við vildum þess vegna hafa þann kost að geta aðlagað og þróað lausnina áfram að okkar aðstæðum, en ekki vera föst í einhverju boxi.

Hallur Húmi Blumenstein

Tæknistjóri Tandurs hf.

Eftir nokkra yfirlegu og ráðfæringar við aðra aðila á fyrirtækjamarkaði var ákveðið að ganga til samstarfs við okkur hjá Vettvangi, enda höfðum við áður smíðað og aðlagað B2B lausnir með mjög góðum árangri fyrir fyrirtæki eins og Epli.is, Innnes og Würth.

Notendaupplifun og hönnun

Vefur Tandurs þjónar fyrst og fremst því hlutverki að kynna vörur fyrirtækisins með einföldum og skýrum hætti og veita viðskiptavinum aðgang að eigin þjónustusvæði og vefverslun.

Hönnun vefsins tók mið af þessu, enda má segja að ný hönnun og viðmót sé snyrtilegt og afar hreint - tandurhreint.

Viðmót á nýjum vef er tandurhreint og stílhreint

Mesta byltingin fyrir Tandur og viðskiptavini fyrirtækisins var hins vegar spáný vefverslun sem var sérsmíðuð fyrir Tandur.

Vefverslunin byggir á verslunarkerfi sem forritarar Vettvangs hafa sjálfir smíðað, sett upp og aðlagað fyrir fleiri viðskiptavini sína á B2B markaði, eins og áður segir.

Kerfið er byggt ofan á Umbraco vefumsjónarkerfið, sem er sérlega notendavænt og þægilegt í notkun. Það er gefið út undir svokölluðum GNU skilmálum um frjálsan og opinn hugbúnað og byggir á .NET tækni Microsoft.

Notkun á Umbraco er gjaldfrjáls og hafa notendur algjört frelsi til að velja þjónustuaðila - sem veitir Vettvangi mikið aðhald hvað varðar þjónustu.

Ný vefverslun og þjónustuvefur

Mikil breyting hefur orðið fyrir viðskiptavini - og sölumenn Tandurs - að skoða og panta vörur.

Vöruyfirlit vefverslunar var til að mynda endurhannað frá grunni. Í grunninn byggir það annars vegar á almennu vörutré en hins vegar á hliðartré sem sem sækir vörur þvert á flokka.

Í þannig hliðartréi er hægt að skilgreina hvaða flokka eða víddir sem er, til dæmis eftir geirum eða mörkuðum („Hótel og gististaðir“, „Þvottahús“).

Vöruyfirlit er hægt að skilgreina eftir víddum að vild

Mjög auðvelt er að stofna til viðskipta í gegnum nýja vefinn. Umsækjendur auðkenna sig einfaldlega með rafrænum skilríkjum og fylla út þar til gert umsóknareyðublað fyrir sitt fyrirtæki. Rafræn auðkenning flýtir mjög fyrir afgreiðslu og eykur öryggi í viðskiptum.

Í nýrri vefverslun geta stjórnendur (e. super Admins) á vegum viðskiptavina til dæmis stofnað, breytt og eytt notendum sem hafa heimild til að panta frá Tandri.

Einfalt er að stofna nýjan notanda í kerfi Tandurs

Stjórnendur geta stillt pantanaheimildir einstakra notenda fyrir tilteknar vörur eða vörulista. Pantanir á slíkum vörum fara þá sjálfkrafa í gegn, en óski notandi þess að kaupa vöru utan heimilda fær stjórnandi beiðni í tölvupósti þess efnis til samþykktar.

Vefverslunin er nú beintengd bókhalds- og birgðakerfi Navision, sem ekki var áður. Þannig er ljóst í rauntíma hvort vara er til, og ef ekki, hvenær hún sé væntanleg.

Á sama hátt sækir kerfið upplýsingar um afsláttarkjör viðskiptavina, auk þess sem þeir geta kallað fram hreyfingalista í vefviðmóti og skoðað einstaka reikninga.

Kerfið sendir líka sjálfvirkar tilkynningar um að vörur séu komnar aftur á lager, hafi þess verið óskað.

Öflug leitarvél sem skilar uppástungum í rauntíma (e. auto-suggest) léttir líka líf allra. Úr leitarniðurstöðum er svo hægt að bæta vörum beint í körfu - einfalt og þægilegt.

Frábærar viðtökur - 300% aukning í vefsölu

Mikil ánægja hefur verið með nýjan vef meðal starfsmanna jafnt sem viðskiptavina Tandurs. Mikilvægasti mælikvarðinn á árangur er þó hvaða áhrif hann hefur á notkun viðskiptavina.

Í sem skemmstu máli hefur vefverslun Tandurs verið tekið húrrandi fagnandi af viðskiptavinum. Frá því verslunin opnaði á vormánuðum 2021 hefur pöntunum fjölgað um yfir 300%.

Þessi árangur Tandurs er í samræmi við það sem við höfum séð hjá öðrum viðskiptavinum okkar eins og Innnes, Domino's og Hugverkastofunni, sem hafa náð miklum árangri í stafrænni umbreytingu.

300% aukning í vefsölu

Pöntunum í gegnum vefverslun Tandurs hefur fjölgað mjög mikið eða um 300% síðan ný vefverslun var gefin út í apríl 2021.

Vegferðin heldur áfram

Tandursfólk er alls ekki komið á leiðarenda á sinni stafrænu vegferð. Í næsta fasa verða nýir eiginleikar innleiddir sem gaman verður að segja frá síðar.

Vandaður vefur er langtímaverkefni sem þarf að þróa áfram í takti við breytingar á markaði og hraðar nýjungar í stafrænni tækni.

Við hlökkum til að takast á við næstu tækniflækjur með Tandri.

Elmar Gunnarsson

Viðskipti og ráðgjöf

Viltu kíkja í spjall?

Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.

Sláðu á þráðinn

415 0018

Eða skelltu á mig pósti

Fyrirtaks fólk í fyrirtaks fyrirtæki

Vettvangurinn er skipaður einvala liði fólks og furðufugla, sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.

  • Framúrskarandi fyrirtæki 2022-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2023
  • Velgjörðafyrirtækja SOS Barnaþorpa
  • Fyrirtækja ársins 2020

Viðskiptavinur