Þjónustusamningar

Flestir viðskiptavinir Vettvangs gera þjónustusamning um áframhaldandi viðhald og þróun vefsins eftir að hann er fyrst gefinn út. En hver eru helstu rökin fyrir áframhaldandi þróun? Er nýr vefur ekki bara klár í slaginn þegar hann er kominn út? Skoðum málið.

Hér eru nokkrar góðar ástæður

Flestir viðskiptavinir Vettvangs gera þjónustusamning um áframhaldandi viðhald og þróun vefsins eftir að hann er fyrst gefinn út. 

En hver eru helstu rökin fyrir áframhaldandi þróun? Er nýr vefur ekki bara klár í slaginn þegar hann er kominn út? 

Skoðum málið.

Mikilvægustu innviðirnir eru stafrænir

Vefurinn gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í rekstri og starfsemi langflestra fyrirtækja og stofnana í dag. Öflugur vefur getur skilið algerlega á milli feigs og ófeigs hvað varðar samkeppnihæfni.

Notendur og skjólstæðingar stofnana og félagasamtaka gera einnig ráð fyrir fyrsta flokks aðgengi að upplýsingum og þjónustu í gegnum veflausnir.

Ef vefurinn virkar ekki 100% eins og notendur ætlast til kemur það fjótt niður á tekjum og þjónustustigi.

Fjárfesting sem þarf að halda við
Það er því mjög mikilvægt að líta á smíði nýs vefs sem innviðafjárfestingu (fremur en til dæmis markaðskostnað), sem þarf að hlúa að og halda við, rétt eins og um verðmæta fasteign væri að ræða.

Fyrirtæki gera nákvæmar áætlanir um rekstur og viðhald húseigna og tækja - ef verðmætum eignum er ekki haldið við grotna þær niður og bitna á endanum á rekstrar- og samkeppnishæfni.

Vefurinn grotnar ekki niður með sama hætti og steypa og stál, en uppfæra þarf vefinn reglulega með auknum kröfum notenda, og bæta við nýrri virkni eftir því sem nýjar tæknilausnir koma fram og samkeppnisaðilar sækja fram með sín stafrænu útspil.

Tækniskuldir eru varasamar

Það getur verið mjög kostnaðarsamt að spara við sig í tækniþróun, safna upp tækniskuldum sem þarf fyrr eða síðar að vinda ofan af, sérstaklega þegar tækniþróun er jafn gríðarlega hröð og hún er í dag. 

Slíka skuldaklafa getur verið erfitt að vinna niður. Miklu skynsamlegra er að byggja á nútímalegum og opnum veflausnum sem auðvelt er að tengja við aðrar lausnir og uppfæra jafnt og þétt.

Róm var ekki byggð á einum degi, og engin veflausn er í raun fullsmíðuð. Þróunin heldur stöðugt áfram.

Fyrirsjáanleiki og betri kjör

Þjónustusamningar fela í sér fyrirsjáanleika og hagræði, bæði fyrir Vettvang og viðskiptavininn. Þannig myndast svigrúm fyrir hagstæðari kjör fyrir tímavinnu.

Tryggur aðgangur að forritunarvinnu

Tími forritara okkar - frekar en hjá öðrum - er ekki lagervara sem liggur lausu. Allir okkar forritarar eru á kafi í verkefnum alla daga. Það er því alls ekki víst að hægt sé að ganga í ný verkefni eða umbætur með skömmum fyrirvara ef ekki er fyrir hendi þjónustusamningur.

Þjónustusamningur tryggir fastan aðgang að tíma forritara og mun hraðari viðhalds- og þróunarvinnu.

Nánara samstarf - betri þjónusta

Því reglulegri sem samskiptin eru því betur lærum við á þarfir og áskoranir viðskiptavina okkar. Reglulegir fundir gefa tækifæri til að ræða áskoranir, bregðast við breytingum á markaði og skoða saman hugmyndir að nýjungum til að ráðast í næst.

Fyrirsjáanleiki og betri kjör

Fyrirsjáanleiki í rekstri er alltaf mikill kostur. Samningur um fasta, mánaðarlega fjárfestingu í vefþróun er ávinningur fyrir jafnt markaðsstjórann, vefstjórann eða fjármálastjórann.  Það er á sama hátt mjög mikilvægt fyrir áætlanagerð og skipulag okkar á Vettvangi.  

Fyrirsjáanleiki þjónustusamninga og hagræði sem þeir skapa gefur okkur á móti svigrúm til bjóða viðskiptavinum okkar umtalsvert betri kjör á tímavinnu.

Allir græða.

  1. Tryggur aðgangur að forritunarvinnu

    Fastur þjónustusamningur tryggir aðgang viðskiptavina að forritunarvinnu á hagstæðum kjörum.

  2. Nánara samstarf

    Reglulegir stöðufundir þar sem farið er yfir áskoranir og tækifæri á stafrænum miðlum eru gríðarlega mikilvægir.

  3. Tækniskuldir úr sögunni

    Það er varasamt og dýrt að safna tækniskuldum. Þjónustusamningur er ávísun á stöðuga þróun á stafrænum lausnum. 

Þjónustustig eftir þörfum

Þótt samið hafi verið um tiltekið þjónustustig, til dæmis, í formi fastra tíma á mánuði er slíkt samkomulag ekki meitlað í stein. Það geta komið tímar þar sem ástæða þykir til að stækka samninginn - fjölga tímunum - og fækka aftur þegar stórum uppfærslum er lokið.

Umsamda tíma þarf ekki heldur að nota innan mánaðar - ef þeir nýtast ekki þann mánuðinn flytjast þeir áfram og nýtast síðar.

Samantekt

Í nútímaumhverfi hraðra tæknibreytinga og harðrar samkeppni á öllum sviðum er óskynsamlegt að safna tækniskuldum og sinna ekki stöðugri þróun og uppfærslu á vefnum.

Þjónustusamningar veita aðgang að forriturum á hagstæðum kjörum og tryggja að stafrænar lausnir viðskiptavina eru ávallt uppfærðar miðað við nýjustu tækni og þróun á markaði.

Elmar Gunnarsson

Viðskipti og ráðgjöf

Viltu kíkja í spjall?

Orð eru til alls fyrst. Kíktu til okkar í heimsókn og segðu okkur þína sögu. Við tökum vel á móti þér, frítt og skuldbindingalaust.

Sláðu á þráðinn

415 0018

Eða skelltu á mig pósti

Fyrirtaks fólk í fyrirtaks fyrirtæki

Vettvangurinn er skipaður einvala liði fólks og furðufugla, sem er gaman og ánægjulegt að vinna með.

  • Framúrskarandi fyrirtæki 2022-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021-2023
  • Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2023
  • Velgjörðafyrirtækja SOS Barnaþorpa
  • Fyrirtækja ársins 2020

Viðskiptavinur