Við leggjum áherslu á gott starfsumhverfi, sveigjanleika í starfi og styrkjum okkar fólk til að skara fram úr á sínu sviði.
![Team Meeting](/media/2erpyc1o/team-meeting.webp?width=370&height=370&v=1db6da415bfff50&format=webp)
Við viljum vaxa - sem fagfólk, sem einstaklingar, sem fyrirtæki.
Ert þú týpan sem þrífst ekki í starfi nema þú fáir krefjandi og fjölbreytt verkefni til að leysa? Viltu vera þar sem á þig er hlustað, þar sem þér er treyst, þar sem skoðanir þínar hafa raunveruleg áhrif? Í okkar litlu tjörn eru bara stórfiskar. Engir hákarlar samt.
Erum við að leita að þér?
Viðmótshönnun
Bestu vefirnir setja upplifun notandans alltaf í fyrsta sæti. Þegar framúrskarandi viðmót og glæsileg hönnun fara saman gerast galdrar. Hvaða galdra langar þig til að fremja?
Viðmótsforritun
Góðir viðmótsforritarar eru jafn eftirsóttir og trommarar sem kunna að halda KJ. Kannski jafn sjaldgæfir líka. Okkar forritarar sitja þó ekki á sínu - hvað með þig? Sendu okkur línu.
Bakendaforritun
Góður bakendi er botninn undir allt hitt. Ert þú snillingur á bak við tjöldin, þar sem réttar tengingar skipta öllu máli og ekkert má klikka? Er kominn tími til að tengja?
![Skal](/media/fxwdyi2q/skal.webp?width=370&height=370&v=1db6da41957a500&format=webp)
Stuðningur og stemning
Við verjum stórum hluta ævinnar í vinnunni, fyrir okkur sjálf eða aðra. Það er fátt mikilvægara en að líða vel í vinnunni, fá útrás fyrir metnað og hæfileika.
Traust og opin samskipti
Sérfræðingar eins og þú blómstra ekki nema þeir geti unnið sjálfstætt og hafi traust yfirmanna. Við treystum okkar fólki til að leysa sín verkefni sjálft en vinnum þó þétt saman, aðstoðum hvert annað og veitum stuðning þar sem þarf. Samskipti eru hreinskiptin og opin, samvinnan þétt, jákvæð og uppbyggileg.
Sveigjanleiki
Nútímafólk lifir í flóknum veruleika. Við erum öll þar. Til að þú náir að gera allt sem þú þarft að gera - fyrir þig og fyrir okkur - bjóðum við sveigjanlegan vinnutíma og jafnvel val um að vinna heima að hluta, eftir verkefnum og samkomulagi.
Við fögnum sigrum
Vinna af krafti, skemmta sér af enn meiri krafti? Það erum við. Við erum dugleg að finna tilefni til að hittast og fagna saman. Við höldum árshátíðir erlendis, fírum upp sumarpartýi með samstarfsaðilu eða förum í keilu og pílukast. Verður þú ferskasti gleðipinninn?
![1](/media/ugtbv10z/1.jpg?width=370&height=370&v=1dae043dc2fc600&format=webp)
Til fyrirmyndar
VR valdi Vettvang Fyrirtæki ársins 2020 og hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2019, 2021, 2022 og 2023. Valið byggir mati starfsmanna sem sett er saman úr níu þáttum; stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuaðstöðu, sveigjanleika, sjálfstæði í starfi, ímynd fyrirtækis, ánægju og stolti, og jafnrétti.
Vettvangur fyrir þá bestu
Til eru þau sem eru sátt með að vera í þægilegri innivinnu á dagvinnutíma. Við erum það líka - en við viljum meira.
Fagfólk í fremstu röð
Við höfum dregið til okkar framúrskarandi sérfræðinga í vefhönnun, forritun, rekstri skýjalausna, flókinni bakendavinnu, textagerð og notendarannsóknum. Hjá okkur er valinn maður og kona í hverju rúmi.
Krefjandi og fjölbreyttar tækniflækjur
Ein ástæða þess að metnaðarfullt fólk vill vinna hjá okkur er að viðskiptavinir okkar eru kröfuharðir og fela okkur flókin verkefni. Til okkar sækja mörg af öflugustu fyrirtækjum landsins sem eiga allt undir því að vera leiðandi í stafrænni tækni.
Góð laun fyrir gott fólk
Við vitum að til að fá besta fólkið er ekki nóg að bjóða gott kaffi og stuð - sem við eigum nóg af. Gott fólk þarf laun við hæfi. Við bjóðum kjör á pari við það sem best þekkist á markaðnum - ef þú hefur það sem til þarf.
Þróun í starfi
Við störfum í geira sem er á fleygiferð og þess vegna leggjum við mikla áherslu á símenntun og þróun í starfi. Hjá okkur færðu tækifæri til að læra áfram og þróast sem sérfræðingur á þínu sviði.
![1](/media/ugtbv10z/1.jpg?width=370&height=370&v=1dae043dc2fc600&format=webp)
Verðlaunavefir
Besta uppskeran er alltaf ánægja viðskiptavina með vel lukkuð verkefni en Vettvangur hefur líka fengið margar viðurkenningar fyrir lausnir sínar. Við getum alveg verið montin af því. Það má.
Íslensku vefverðlaunin
Íslensku vefverðlaunin
Íslensku vefverðlaunin
Umbraco Awards
Íslensku vefverðlaunin
Fyrirtaks fólk skapar
fyrirtaks fyrirtæki
Frábær fríðindi
Við viljum skapa aðstæður þar sem þú hefur tækifæri til vaxtar og sjálfræktar, og að þú hafir öll tæki og tól til að skila þínu sem allra best.
Við styrkjum þig til sjálfsræktar
Það er mikilvægt að halda haus og heilsu við. Við veitum starfsmönnum okkar ráðstefnustyrk um allt að 150.000 kr. á ári, sem hægt er að nýta erlendis sem hérlendis. Einnig styrkjum við okkar fólk um 60.000 kr. á ári til að sækja líkamsrækt að eigin vali.
Niðurgreiddur hádegismatur
Í nágrenni okkar er fjöldi veitingastaða þar sem Vettvangur hefur samið um afsláttarkjör. Auk umsamins afsláttar í gegnum Vettvang greiðir við 50% af verðinu sem eftir stendur. Veisla! Svo er alltaf úrvalskaffi á könnunni, fullur ísskápur af gosi og (mis)hollur skyndibiti á borðum.
Fyrsta flokks aðstaða
Skrifstofur okkar á 5. hæð á Suðurlandsbraut 6 eru fyrsta flokks. Sumir sækja um hjá okkur bara fyrir útsýnið yfir Esjuna og sundin blá. Bílastæði eru ókeypis og næg - ef þú mætir ekki seint. Að sjálfsögðu færðu svo allan þann búnað sem þú þarft til að brillera, auk greiðslu kostnaðar fyrir síma og internetið heima.
![Fyrirtaeki Arsins 2020](/media/ddmlxkzf/fyrirtaeki-arsins-2020.webp?width=370&height=370&v=1db6da4178f6820&format=webp)