Þú þarft ekki að trúa okkur, trúðu þeim
Á Vettvangi hönnum við og þróum vefi. Alvöru góða vefi. Við vinnum hraðvirkar, öflugar og öruggar lausnir sem svara jafnt viðskiptalegum markmiðum þínum sem og þörfum notenda þinna.
Mjög ánægð með allt upplýsingaflæði, skipulag og áreiðanleika
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Við hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna getum hiklaust mælt með Vettvangi. Vinnunni með þeim fylgir jákvæður og spennandi kraftur og frumkvæði í að finna góðar lausnir sem passa okkur. Ekki ein lausn sniðin eins fyrir alla. Við kunnum vel að meta nálægðina við þá sem vinna að hönnun og forritun sem einfaldar allt og sparar tíma. Við höfum verið mjög ánægð með allt upplýsingaflæði, skipulag og áreiðanleika. Síðast en ekki síst höfum við fundið að teymið hjá Vettvangi sýnir okkar viðfangsefnum og notendahópum raunverulegan áhuga sem gerir allt samstarf lipurt og ánægjulegt.
Framúrskarandi skilningur á þörfum okkar
Grétar Ingi Grétarsson
Aðstoðarforstjóri Nordic Patent Institute
Vettvangur sýndi framúrskarandi skilning á þörfum okkar sem tryggði að nýja vefsíðan okkar, npi.int, samræmdist fullkomlega sýn okkar og þörfum. Samskiptin voru til fyrirmyndar í gegnum allt ferlið og fagmennskan skein í gegn. Mælum eindregið með þeim og hlökkum til árfamhaldandi samstarfs.
Öll samskipti hröð og góð
Pétur Rúnar Heimisson
Markaðsstjóri Heima
Ég get ekki mælt meira með þjónustu Vettvangs en teymið þeirra er skipað frábærum aðilum sem reyndust okkur hjá Heimum vel þegar við vorum í endurmörkunarferli og vorum að búa til nýjan vef sem var hannaður frá grunni hjá þeim. Öll samskipti eru hröð og góð og alltaf er fyrirspurnum og þjónustubeiðnum svarað með jákvæðni og þjónustulund.
Einstaklega lausnamiðað fólk á Vettvangi
Tinna Harðardóttir
Upplýsingatæknistjóri hjá Innnes
Samstarf Innnes og Vettvangs hófst árið 2017 með innleiðingu vefverslunar. Starfsemi Innnes og þjónusta við viðskiptavini er fjölþætt og síbreytileg og stafrænar þarfir í takt við það. Var því ljóst að verkefnið yrði ærið og krefjandi og því mikilvægt að velja traustan aðila. Við komumst fljótt að því að hjá Vettvangi starfar einstaklega lausnamiðað fólk sem hefur frá upphafi nálgast hugmyndir okkar af opnum hug en jafnframt með faglegri og heiðarlegri ráðgjöf, stílhreinni hönnun og vönduðum vinnubrögðum. Útkoman er vefur sem við erum afar stolt af í dag.
Þau vita hvað þau eru að gera og ganga hreint til verks
Guðmundur Magnason
Framkvæmdastjóri Inkasso
Vettvangur sá um nýju heimasíðuna okkar og var samstarfið einstaklega gott. Þau vita hvað þau eru að gera og ganga hreint til verks. Kann sérstaklega að meta metnaðinn sem þau hafa fyrir hönd viðskiptavina sinna og að hugmyndir okkar séu ekki einfaldlega framkvæmdar heldur leggur starfsfólk Vettvangs sig fram um að bæta þær. Það er óhætt að segja að Vettvangur hafi skilað sínu því nýi vefurinn okkar var tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna!
Lausnamiðuð nálgun og endalaus þolinmæði
Margrét Héðinsdóttir
Vefstjóri Heilsuveru
Fjölmargar áskoranir og álitamál hafa komið upp í tengslum við þróun þekkingarvefs heilsuveru. Við komum aldrei að tómum kofanum hjá Vettvangi, þar á bæ hafa menn lausnamiðaða nálgun, endalausa þolinmæði og góðar tillögur sem margar hverjar hafa slegið rækilega í gegn hjá notendum vefsins.
Snerpa Vettvangs við úrvinnslu verkefnisins aðdáunarverður
Sesselía Birgisdóttir
Forstöðumaður nýsköpunar og markaðsmála hjá Högum
Hagar ákváðu að fara í uppfærslu á heimasíðu félagsins í samstarfi við Vettvang. Tímarammi verkefnisins var aðeins 6 vikur og var snerpa Vettvangs við úrvinnslu verkefnisins aðdáunarverð. Verkefnastjóri verkefnisins frá Vettvangi var mjög virkur í samskiptum og hafði einstakt lag á að greina mögulegar þarfir okkar og koma með hugmyndir að útfærslu. Samstarfið við hönnuð Vettvangs og forritara var einnig mjög gott og var alltaf brugðist hratt við öllum athugasemdum, spurningum eða hugmyndum. Við gefum Vettvangi okkar bestu meðmæli og þá helst fyrir fagþekkingu, snerpu og sérstaklega gott viðmót í samvinnu.
Náið samstarf, hreinskiptin og heiðarleg samskipti
Pétur Vilhjálmsson
Stafrænn leiðtogi hjá Hugverkastofunni
Á meðal þess sem við vildum að yrðu leiðarljósin í samstarfi við Vettvang var náið og stöðugt samstarf, hreinskiptin og heiðarleg samskipti, greiður og beinn aðgangur að hönnuðum og forriturum, einfalt og aðgengilegt vefumsjónarkerfi og að uppsetning vefsins yrði þannig að við hefðum mikla stjórn á honum. Vettvangur hefur reynst frábær samstarfaðili, ekki síst vegna þess að aðferðafræðin þeirra féll fullkomlega að þessum væntingum okkar.
Ég mæli hiklaust með hönnunarsprettinum hjá Vettvangi
Maria Neves
Samskiptastjóri Borgarbyggðar
Vinnan er faglega unnin frá A-ö og það er vel hlustað á allar ábendingar og athugasemdir á meðan á ferlinu stendur. Hönnunarspretturinn auðveldar áframhaldandi vinnu og flýtir fyrir þessari grunnvinnu sem þarf að eiga sér stað áður en stofnanir láta forrita nýja heimasíðu.
Hönnunarspretturinn með Vettvangi gekk gríðarlega vel
Guðjón Elmar Guðjónsson
Markaðsstjóri Netgíró
Góð samskipti og hröð vinnubrögð einkenndi þeirra starf. Þar að auki var vefurinn sem þau smíðuðu mjög vel heppnaður. Ég mæli hiklaust með þeim sem samstarfsaðila í litlum sem stórum verkefnum.
Þróun vefs og stafrænna lausna aldrei verið hraðari og betri
Egill Þorsteinsson
Head of digital Domino’s Íslandi
Samstarfið við Vettvang hefur verið gott og árangursríkt. Hjá Vettvangi starfar hæfileikaríkt fólk með mikinn metnað sem einstaklega gott er að vinna með. Við hófum samstarf snemma árs 2017 og hefur þróun vefsins og stafrænna lausna aldrei verið hraðari og betri. Við hjá Domino’s viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á eins góða þjónustu og hægt er og spila þar stafrænar lausnir lykilhlutverk. Teymið okkar hjá Vettvangi hefur reynst okkur mjög vel í þessari vegferð. Í sameiningu höfum við náð að yfirstíga tæknilegar áskoranir og þróað lausnir sem styðja við okkar viðskiptalegu markmið.
Góðar ráðleggingar, fagleg vinnubrögð og gott viðmót
Þóra Hallgrímsdóttir
Verkefnastjóri veflausna Epli
Þekking og hæfni starfsmanna Vettvangs á sviði veflausna og hönnunar hefur skilað Epli nýrri heimasíðu sem mikil sátt ríkir með. Samskipti og þolinmæði þeirra er til fyrirmyndar sem og einlægur vilji til að vefsíðan sé sem best á alla vegu. Góðar ráðleggingar, fagleg vinnubrögð og gott viðmót til viðskiptavinarins er það sem stendur uppúr í þessari vinnu.
Frá upphafi hefur Vettvangur verið órjúfanlegur hluti af okkar fyrirtæki
Sveinn Óskar & Tanja Dögg
Eigendur Mín líðan
Þegar Mín líðan var enn bara hugmynd þá óraði okkur ekki fyrir hversu stórt og krefjandi verkefnið yrði fyrir vefstofuna sem tæki það að sér. Að færa sálfræðimeðferð úr hefðbundinni samtalsmeðferð og nær alfarið á veraldarvefinn reyndist vera mun stærri og flóknari vegferð en við gerðum okkur grein fyrir í upphafi.
Við hittum margar vefstofur, forritara og hönnuði og fundum aldrei neinn sem skildi almennilega okkar þarfir. Þegar við loksins hittum teymið hjá Vettvangi þá small eitthvað frá fyrsta fundi og við fundum strax að við yrðum í góðum höndum. Vafalaust væri Mín líðan enn bara hugmynd ef við hefðum ekki gerst svo heppin að fá ábendingu um Vettvang vefstofu.
Frá upphafi hefur Vettvangur ekki bara verið samstarfsaðili Mín líðan heldur órjúfanlegur hluti af okkar litla fyrirtæki og það skín í gegn í allri þeirra vinnu að þeir líta samstarfið sömu augum og við. Þjónustan er persónuleg og fylgir Vettvangur þörfum viðskiptavina sinna.