Fara á efnissvæði
Vettvangur
Vettvangur

Samstarfsaðilar

Lyfju appið

Hlutverk okkar

  • Appþróun
  • Vefþróun
  • API samþætting
  • Mínar síður
  • Vefverslun

Verðlaunavefir

Svef Gold Svef Gold

Óhætt er að fullyrða að Lyfja sé leiðandi á markaði hvað varðar stafræna þjónustu með lyf og heilsuvörur. Ný útgáfa af Lyfju appinu býður betri notendaupplifun með dýpri vörulýsingum, betri vöruflokkun og mun meira vöruúrvali. Appið er þróað í samstarfi við Apparatus, systurfyrirtæki Vettvangs.

Lyfja App 1

„Teymið hefur sýnt mikinn metnað í að sökkva sér í umhverfið okkar til að þróa með okkur lausn sem varpar flóknum kerfum við lyfsölu fram á einfaldan hátt en alltaf með viðskiptavininn í forgrunni.“

Thorvaldur

Þorvaldur Einarsson

Forstöðumaður tæknisviðs

Lyfja App 2

Persónusniðið viðmót

Á heimaskjá birtast aðeins upplýsingar sem snerta beint viðkomandi notanda, svo sem pantanir og vörur sem mælt er með fyrir hann.

Lyfja App 3

Afgreiðsla eftir hentugleika

Í appinu er hægt að fá pöntun senda heim samdægurs í stærstu sveitarfélögum landsins eða sækja í nálægasta eða annað valið apótek.

Lyfja App 4

„Verkefni ársins 2023“

Lyfju appið hefur sannarlega slegið í gegn hjá notendum jafnt sem fagfólki í stafrænni vöruþróun. Appið var útnefnt „Stafræn lausn ársins” og „Verkefni ársins“ af dómnefnd SVEF fyrir 2023.

Lyfja App 5

Heilsufarsmælingar á einum stað

Hægt að skrá og fylgjast með á einum stað ýmsum heilsufarsmælingum eins og blóðþrýstingi, blóðsykri og kólestróli.